Flugvél tilbúin til að flytja Snowden til Íslands 20. júní 2013 19:07 Þota í eigu fyrirtækis í Kína hefur verið tekin á leigu af aðilum tengdum Wikileaks til að flytja uppljóstrarann, Edward Snowden til Íslands. Beðið er viðbragða frá innanríkisráðherra um hvort Snowden fái pólitískt hæli hérlendis. "Allt til reiðu hjá okkur og vélin gæti farið í loftið á morgun", segir fulltrúi frá Wikileaks. Edward Snowden er fyrrverandi starfsmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna. Hann komst nýverið í heimsfréttirnar eftir að hafa upplýsti fjölmiðla um umfangsmiklar netnjósnir bandarískra yfirvalda. Í gegnum Kristinn Hrafnsson, talsmanns Wikileaks, lýsti Snowden yfir áhuga á að fá pólitískt hæli á Íslandi. Ef innanríkisráðherra tekur jákvætt í beiðni Snowden er ekkert því til fyrirstöðu að hann komi til Íslands á næstu dögum."Við erum í raun og veru bara búnir að því sem þarf að gera okkar megin. Það er búið að útvega flugvél og öll "logistic" eru klár. Nú bíðum við bara eftir því hvað ríkisstjórnin vill gera", segir Ólafur Vignir Sigurvinsson, fulltrúi Wikileaks og stofnandi DataCell. Það kostar minnst 40 milljónir króna að flytja Snowden til Íslands, þar af er beinn kostnaður vegna þotunnar 30 milljónir. Framtakið er fjármagnað með framlögum einstaklinga en Wikileaks hefur milligöngu um málið. Beðið er viðbragða frá innanríkisráðuneytinu um hvort Snowden fái hér pólitískt hæli. Ólafur Vignir segir ólíklegt er að Snowden komi til landsins áður en jákvæð svör berast þaðan. "Nei, ég held að það sé bara kjánalegt að fara með manninn hingað ef hann verður framseldur um leið til Bandaríkjanna. Þá er hann betur settur þar sem hann er. Við viljum ekki bera ábyrgð á því að framselja hann í hendur Bandaríkjamanna." Að sögn Ólafs er leiguvélin klár og getur farið í loftið á morgun. Kristinn Hrafnsson talsmaður Wikileaks er einn þeirra sem hefur milligöngu um komu Snowdens hingað til lands og hefur fylgst afar vel með gangi mála. Hann segir að um einstakt tækifæri sé að ræða þar sem þjóðin geti sýnt sínar allar bestu hliðar. Hjörtur Hjartarson ræddi við Kristinn sem staddur er á ráðstefnu í Ekvador seinni partinn í dag. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Sjá meira
Þota í eigu fyrirtækis í Kína hefur verið tekin á leigu af aðilum tengdum Wikileaks til að flytja uppljóstrarann, Edward Snowden til Íslands. Beðið er viðbragða frá innanríkisráðherra um hvort Snowden fái pólitískt hæli hérlendis. "Allt til reiðu hjá okkur og vélin gæti farið í loftið á morgun", segir fulltrúi frá Wikileaks. Edward Snowden er fyrrverandi starfsmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna. Hann komst nýverið í heimsfréttirnar eftir að hafa upplýsti fjölmiðla um umfangsmiklar netnjósnir bandarískra yfirvalda. Í gegnum Kristinn Hrafnsson, talsmanns Wikileaks, lýsti Snowden yfir áhuga á að fá pólitískt hæli á Íslandi. Ef innanríkisráðherra tekur jákvætt í beiðni Snowden er ekkert því til fyrirstöðu að hann komi til Íslands á næstu dögum."Við erum í raun og veru bara búnir að því sem þarf að gera okkar megin. Það er búið að útvega flugvél og öll "logistic" eru klár. Nú bíðum við bara eftir því hvað ríkisstjórnin vill gera", segir Ólafur Vignir Sigurvinsson, fulltrúi Wikileaks og stofnandi DataCell. Það kostar minnst 40 milljónir króna að flytja Snowden til Íslands, þar af er beinn kostnaður vegna þotunnar 30 milljónir. Framtakið er fjármagnað með framlögum einstaklinga en Wikileaks hefur milligöngu um málið. Beðið er viðbragða frá innanríkisráðuneytinu um hvort Snowden fái hér pólitískt hæli. Ólafur Vignir segir ólíklegt er að Snowden komi til landsins áður en jákvæð svör berast þaðan. "Nei, ég held að það sé bara kjánalegt að fara með manninn hingað ef hann verður framseldur um leið til Bandaríkjanna. Þá er hann betur settur þar sem hann er. Við viljum ekki bera ábyrgð á því að framselja hann í hendur Bandaríkjamanna." Að sögn Ólafs er leiguvélin klár og getur farið í loftið á morgun. Kristinn Hrafnsson talsmaður Wikileaks er einn þeirra sem hefur milligöngu um komu Snowdens hingað til lands og hefur fylgst afar vel með gangi mála. Hann segir að um einstakt tækifæri sé að ræða þar sem þjóðin geti sýnt sínar allar bestu hliðar. Hjörtur Hjartarson ræddi við Kristinn sem staddur er á ráðstefnu í Ekvador seinni partinn í dag.
Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Sjá meira